Café Konditori býður upp á alhliða veisluþjónustu, hvort sem það er fyrir brúðkaup, skírnir, fermingar, afmæli, árshátíðir, móttökur, ráðstefnur eða erfidrykkjur. Veislurnar okkar eru iðulega með dönsku ívafi og er fagmennskan ávallt í fyrirrúmi. Veisluborðið er samansett af framúrskarandi konditor-hefð, mat og öruggri þjónustu. Við hvetjum ykkur til að koma í heimsókn og skoða það helsta sem stendur til boða og ekki er síður nauðsynlegt að fá að smakka herlegheitin. Það er engin veisla svo smá eða svo stór að það borgi sig ekki að tala við okkur. Hringdu og pantaðu tíma með fagfólkinu þegar þú ert að huga að undirbúningi veislunar. s: 588-1550














